Mitt blogg er þín lesning

Hér mun koma fram allt sem ég hugsa, hvað ég geri, hvað hver segir og allt um það:)

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Ferðalagið er búið....

heil og sæl þið öll...
Þá er ferðalagið mitt á enda og mikið var gaman .... það hófst þegar Kallinn minn þessi elska keyrði mig á flugvöllinn, ég gat ekkert gert á flugvellinum þar sem það tók alveg endalausan tíma að bóka sig inn ég var komin kl 6.15 og átti flug kl 7.45 svo það var nægur tími en ekki var það rétt ég var komin í fríhöfnina kl 7.15 og þá var bara 30 mínútur í flug ... náði að kaupa smá drykk og búið svo þegar í vélina var komið var alveg endalaus bið, því við áttum að fara í loftið kl 7.45 eins og kom fram áðan en það voru einhverjir tælendingar sem komu 30 mínútum og seint í vélina og var þá komin hálftíma seinkun algjört ógeð.... en þegar ég var komin í loftið tók svo við flug í 2 tíma og 50 mínútur....
Ég lennti svo á kastrup og vá mikil bið eftir töskum og þar hitti ég margt fólk úr Ármúlanum eða við vorum 5 úr gamla skólanum mínum og Sæþór kennari þar á meðal ... garuinn bara þekkti mig ekki issss en svo töluðum við smá saman og ég fékk töskurnar og dreif mig í gegn því það hafði verið seinkun og ekki vildi ég láta Stebba brósa bíða lengur... en mikið knús tók við þegar við hittumst .... enda langt síðan síðast .... svo keyrðum við af stað í litla sæta bílnum hans sem er Citroen c2 krútt bíll eða frúarbíllinn eins og hann kallar hann en svo tók við 40 mínútna keyrsla yfir brúnna yfir til Svíþjóðar... og þaðan á flugvöllinn í Malmö þar sem við vorum að sækja hann Bjarna félaga hans og míns líka sko... svo var haldið heim til Stebba
Fimmtudagurinn var alveg rólegur við slökuðum bara á og spjölluðum saman alveg til kl 4 um nóttina hihi enda margt að tala um ... Árný beið okkar þegar við komum heim og líka hann Nemó sem er alveg yndislegur voffi eins og þau öll eru yndisleg í alla staði ... við Árný ræddum strax um hvað við ætluðum að gera á föstudeginum enda það fór ekki milli mála það var verslunarferð til Malmö... og við náðum að eyða alveg fullt ...komum svo við á leiðinni til baka eftir nær 7 tíma ferð og náðum í pizzu fyrir svanga karlmenn... við fórum að sofa í fyrri kantinum þetta kvöld enda ætluðum við að fara yfir til Köben og skoða á Laugardeginum sem við gerðum ... löbbuðum strikið og svo fórum við í Christaníu jiii alveg einstakt en ekki er það eins og það var ... ég átti að koma fyrir 3 árum síðan og skoða en maður getur ekki séð allt á lífsleiðinni þó að manni langi það .... svo kíktum við í eitt moll Fisketorvet held ég að það heiti og fengum okkur að borða .... svo var bara haldið heim og pakka niður fyrir mig enda var ég að fara með lest til tengdó á sunnudeginum sem endaði í ævintýri.... ég kvaddi stebba og Árnýju á sunnudeginum á lestarstöðinni í Malmö og fór yfir til Köben og þar átti ég að kaupa lestarmiða en nei kortið mitt var bara ekki að virka þar sem heimlidin hafði fallið niður og ég á núlli ... var föst á lestarstöðinni í 3 tíma áður en ég komst af stað ferðalag sem átti að taka mig tæpa 3 tíma tók mig 7.5 tíma össss en málinu var reddað tengdó keypti miðann minn fyrir mig eftir að kallinn minn náði á hana ... og svo kom ég loks til Horsens þar sem Erla mágkona tók á móti mér með stóru knúsi .... og við keyrðum svo til tengdó þar var tekið vel á móti mér búið að flagga íslenska fánanum og við skoðuðum margt og fengum svo æðislegan kjúkling að borða .... um kvöldið spjölluðum við saman og skoðum myndir af kallinum frá því að hann var lítill mikið gaman enda sætur strákur svo daginn eftir fórum við í litla bæinn hennar og verlsuðum smá og svo var mér skutlað til Skanderborg og þaðan tók ég lestina án einhverra tafa beint á flugvöllinn í Kastrup.... svo beið ég þar í nær 2 tíma eftir fluginu og það flug var kalt og ógeðslegt.... ef ég má segja svoleiðis... ég sat í sæti fyrir framan neyðarútganginn og ég gat því ekki hallað sætinu og það blés inn um gluggan hjá mér .... það var hél að innan verðum glugganum og skíta kuldi hjá mér... en svo fékk ég góðar móttökur frá köllunum mínum enda æðislegt knús og kossar .... en það er alltaf gott að koma heim
En takk æðislega fyrir mig Stebbi og Árný og líka Jóhanna tengdó og Erla

miðvikudagur, mars 29, 2006

Ferðalagið hefst á morgun :)

SÆL þið öll
Ég veit þið saknið mín :)
haha nei ég er bara búin að vera heima með lasarusinn minn sl 2 daga eða frá því í hádeginu á mánudag, hann bara fékk þessa ógeðslegu ælupest og niðurgang í kjölfarið, hreinn viðbjóður....en hann er komin á gott ról núna og er komin aftur á leikskólann, mjög hress og kátur með lífið enda er hann að fara til ömmu og afa í dag og mun dvelja þar í 5 nætur mjög gaman enda bíður hann spenntur eftir því...mamman ég er að fara að skella sér til Dk og svíþjóðar eins og flestir vita og fer ég af stað kl 07:45 í fyrramálið :) kem á hádegi til DK og þar mun minn elskulegi Stebbi bíða mín og ætli Bjarni verði ekki líka með honum ... þetta verður bara eins og í gamla daga .... en ég bara hlakka svo mikið til :)
Ég hef svo sem ekkert mikið að segja nema að ég ætla að ná að gera nóg í ferðalaginu mínu :-) ferðast smá og kíkja á tengdó og svona sem að ég held verði bara mjög fínt þar sem ég hef aldrei komið til hennar .... júbí júbíii
Látum þetta nú nægja í bili ég kanski skrifa eitthvað meira frá útlandinu ef ég hef tíma í það :) því það verður svo gaman
Adios

mánudagur, mars 20, 2006

Eruð þið farin að sakna mín

Jiii alveg heil öld síðan ég skrifaði hérna síðast... múhaha nei ég bara hef hreinlega ekki nennt því enda nóg annað að gera svo sem liggja í flensu í 5 daga já takk þvílíki viðbjóðurinn, og er í vinnu núna en er ekki orðin góð samt sem áður hósti kvef, hiti æla name it ég var með það ógeð ógeð..!
En það styttist í ferðina mína miklu aðeins 10 dagar til stefnu jiii ég er farin að hlakka mikið til í að stíga í flugvél og stíga á land Dana, sem ég hef aldrei gert áður já skammið mig en svona er lífið...en ég er að fara í að hitta hann Stebba minn í Svíþjóð og er búin að lofa tengdó að kíkja aðeins á hana :) enda ekki oft sem hún fær tengdadóttur sína tilvonandi í heimsókn...3 ár og ég hef aldrei farið út ... hóst Dk kostar lítið að fara þangað en svona er þetta ... við reynum að gera eitthvað sneddí saman
Sl vikur hafa verið rólegar ég er búin að vera mikið bara heima við enda Kallinn búin að vinna mikið sl vikur og framhaldið er ekkert skárra bara vinna og vinna enda fermingar framundan, við förum allavega í eina hjá syni vinafólks okkar, spennandi það ....
Það er svo lítið sem hægt er að segja meira nema helgin fór bara í veikindi og ógeð, en samt smá kúr og meira kúr með kallinum þegar hann var ekki sofandi og hrjótandi :)
en segjum þetta nóg í bili knúzzzzz

Elínar og Evu blogg



Take'>http://www.quizgalaxy.com/quiz.php?id=41">Take this quiz at

mánudagur, mars 06, 2006

Sjáið duglega strákinn minn :)



Við ákváðum þar sem maðurinn var í fríi að leyfa prinsinum að ráða hvað yrði gert um helgina og jú hann valdi að fara að hjóla :)
svo kemur meira blogg næstu daga


 Posted by Picasa

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Hvað er ég gömul?

You Are 21 Years Old
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.
What Age Do You Act?

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Fimmtudagurinn mikli

Góðan daginn.... ég er alveg búin að gleyma að ég eigi blogg ... ég hreinlega nenni ekki að skrifa á það eða svoleiðis ....
Ég hef ekkert verið fyrir framan tölvu sl 2 daga já hræðilegt maður fær alveg þessi þvílíku einkenni og missir af svo miklu eða það finnst mér sko .... en ég er bara búin að liggja í flensu eða ég fékk svo svakalegt mígrenis kast á mánudag sem var bara í nær 26 klukkutíma takk fyrir ... ég lá með hausinn í grúfu undir sæng með öll ljós slökkt og ekki hljóð í kringum mig ... alveg ógeð skal ég segja ykkur .... en ég held að ég sé að lagast ... En elsku Eva mín áttu tíma í nudd fyrir mig ? ég held að ég sé að deyja ég er með dofa í öxlum og baki .... gott að eiga svona vinkonur sem dextra við mann og geta lagað mann og gert mann sæta og fína ...
Það er samt sem áður að koma helgi ... jú og ég er að fara á árshátíð með vinnu kallsins míns alveg hamingja þar á ferð en þeir verða samt nú rólegir enda Mikil helgi framundan... bolluhelgin mikla skal ég segja ykkur ...
Þessi vika er búin að vera mikil afmælisvika skal ég segja ykkur en það byrjaði á sunnudaginn 19 febrúar á konudaginn sjálfan en kallinn minn átti afmæli 26 ára hann fékk smá dekur .... svo á þriðjudaginn átti afi minn afmæli og það stór afmæli 85ára kallinn, svo í gær átti Eva "cocopuffs" frænka afmæli hún var 20 ára skvísan .... bara innilega til hamingju með afmælið öll það eiga fleiri afmæli á næstunni en ég bara kem með kveðjur þegar að því kemur....
Ég er að spá í að fara að koma mér í ljós, heitan pott eða heita sturtu áður en ég hníg niður hérna úr dofa í bakinu....
see ya all later

föstudagur, febrúar 10, 2006

Föstudagur í dag!!!

Ja hérna hér það er loksins komin þessi besti dagur vikunnar hahah já föstudagur
Helgin er framundan litli prinsinn minn fer til pabba síns um helgina en ég sæki hann á sunnudag til að fara í fimleika það er svo gaman að fylgjast með honum þar:)
en annars held ég að helgin verði bara róleg eða svoleiðis ég er að vinna á laugardaginn á Áttunni jeij rosa gaman en svo er bara afmæli hjá einni skottu á sunnudag maður verður nú að mæta og hitta skvísuna ....
En svo er Idolið í kvöld já mér finnst þemað ekkert smá sniðugt...finna lag sem kom út á fæðingarári krakkana geggjað sniðugt... haha
En vikan er búin að vera bara ágæt .... ég skrapp með stelpunum á konukvöldið í smáralindinni á miðvikudaginn og sumar drukku dáldið en aðrar héldu sig á mottunni og drukku bara sprite zero og kristal, rosa kúl heheh en þetta var skemmtilegt að fara og sjá þetta og líka hvað fólkið sem var að halda þetta kvöld var grimmt í að hella kerlingarnar fullar....
Ég hef nú lítið annað að segja en hafið góða helgi og heyrumst en þið sem viljið koma í pool um helgina endilega kíkið á mig ég er að vinna frá 19 -03 á laugardagskvöldið:)